02.05.2012 22:10
Heimsókn frá Seyðisfirði
Ágætu félagskonur.
Helgina 4 - 6. maí koma 18 félagskonur í Slysavarnadeilinni Rán frá Seyðisfirði í heimsókn til okkar. Deildin er að endurgjalda einstaklega vel heppnaða heimsókn okkar til þeirra í október síðastliðinn þar sem tekið var á móti okkur sem kóngafólk væri.
Á föstudagskvöldinu 4. maí tökum við á móti þeim með súpu í húsinu okkar og vísum þeim á næturstað.
Á laugardeginum 5. maí hittumst við í húsinu okkar að Gunnarsbraut kl 10:30. Þá hefst óvissudagskrá sem áætlað er að ljúki kl 15:00. (Skráning óskast) Engin fjallganga er þó þar á meðal, allt lauflétt ef svo má segja. Klukkan 15:00 er frjáls tími en stundvíslega klukkan 17:50 verður ferðinni heitið í skoðunarferð. Farið verður á rútu frá húsinu okkar að Grunnarsbraut. (Skráning nauðsynleg)
Um kvöldið ætlum við að borða saman og eiga skemmtilega kvöldstund með gestunum og eru allar félagskonur velkomnar. Borðhald hefst klukkan 20:00 (Skráning óskast)
Sunnudagur er heimferðadagur gesta okkar og þá bjóðum við þeim í morgunmat.
Þeir sem vilja taka þátt í dagskránni vinsamlegast skráið ykkur hjá Örnu í síma: 4661377/8645977 eða á netfangið: arna.a@internet.is og Kolbrúnu í síma 8663466/4661082 eða á netfangið storholsvegur4@simnet.is .
Margar hendur vinna létt verk, hafi einhver tök á að vinna með okkur á einhvern hátt, vinsamlegast hafi líka samband við Örnu og Kolbrúnu.
Viljum taka það fram að félagskonur eru meira en velkomnar í alla dagskrána
Hlökkum til að sjá ykkur, góð félagskveðja,
stjórn Slysavarnadeildarinnar Dalvík.
11.03.2012 11:35
Aðalfundur 18. mars 2012
Aðalfundur Slysavarnadeildarinnar Dalvík
Verður haldinn sunnudaginn 18. mars kl: 14:00, að Gunnarsbraut 4.
Dagskrá fundarins:
Venjuleg aðalfundastörf
Lagabreytingar
Kosning formanns
Kosið í stjórn og nefndir
Nýir félagsmenn teknir inn
Kaffiveitingar
Önnur mál
Félagsmenn eru hvattir til að mæta
Kveðja stjórnin
17.10.2011 19:07
Heimsókn til Seyðisfjarðar
Föstudaginn 7. október lögðu níu félagar í Slysavarnadeildinni Dalvík land undir fót. Ferðinni var heitið austur á land, til Seyðisfjarðar til að heimsækja stöllur okkar í Rán. Ferið gekk í alla staði vel og á leiðinni var stoppað í Jarðböðunum til að fá sér kaffisopa. Húsráðandi þar lét sitt ekki eftir liggja til að gera ferðina skemmtilega og samdi vísu um kvennahópinn sem hljóðar svo:
Í dömulíki Dalvíkingar
drífa sig hér uppfyrir,
sælir verða Seyðfirðingar
sérstaklega karlarnir (Friðrik Steingrímsson).
Með þetta í farteskinu hélt hópurinn glaður í bragði af stað, taldi sig að sjálfsögðu einstakan eftir að hafa fengið vísu uppá vasann. Annað átti eftir að koma í ljós.
Vel var tekið á móti hópnum þegar hann kom í slysavarnahúsið, en húsinu deilir Rán með björgunarsveitinni, ekki ósvipað fyrirkomulag og á Dalvík. Góður hópur kvenna beið, heit súpa og brauð og hreint frábært spjall. Ekki leið á löngu þar til vísan góða kom til umræðu og þá kom í ljós að hinn ágæti Friðrik semur vísur handa mörgum konum, að sögn Ránarkvenna. Já vonbrigðin leyndu sér ekki hjá Dalvíkingunum. Eftir góða stund var haldið í Skóga (byggt 1928) og þar var gist næstu tvær nætur. Þökk sé Ránarkonum að við fengum góða gistingu.
Ekki var reimt í húsinu og því svaf hópurinn vel. Eftir morgunhressingu fóru slysavarnakonur galvaskar á fund Ránarkvenna og ekki spillti fyrir að þarna voru nokkrir úr björgunarsveitinni Ísólfi. Þeir höfðu lagt fararskjótum sínum á planið og voru þeir í stærra lagi, eða eins og björgunarsveitarfélögum sæmir. Ferðinni var haldið í Skálanes í minni Seyðisfjarðar. Veðrið lék ekki við hópinn, beljandi rigning og rok. Skynsamar konur voru hér á ferð, svo viðeigandi hlífðarfatnaður var tekinn með, og því hafði veðurfarið lítil áhrif. Hópurinn gekk út að útsýnispallinum og naut verunnar þar. Á leiðinni voru sagðar sögur sem gerðu ferðina skemmtilegri. Á heimleið var heitt kaffi í boði staðahaldara í Skálanesi.
Gott var að komast inní hlýjuna og á meðan kaffið var drukkið fengu ferðalangarnir sögu Ránar, fræddust um starfsemi deildarinnar og það helsta sem er á döfinni. Auk þess var saga Skálaness sögð. Einkar áhugavert. Slysavarnadeildin er á miðjum aldri ef svo má segja, var stofnuð 1957, á meðan Dalvíkurdeildin er öldungur, stofnuð 1934. Engu að síður gott og þarft starf unnið í báðum deildum. Hópurinn þakkaði fyrir sig með því að skrifa í gestabókina.
Skálanes er menningar og náttúrusetur. Þar er oft margt um manninn í leit að fróðleik, frið til að skrifa, sýsla við eitt og annað og rannsaka. Fjallasýnin er fögur, fuglabjarg er þar í grennd og náttúran býður uppá ró og næði kjósi fólk það. Gestir geta aflað sér vitneskju um allt mögulegt og eru staðahaldarar þeim innan handar með upplýsingar. Viðfangsefnin eru fjölbreytt og má þar nefna; Fuglatalningar, Jarðfræði, Ferðaþjónustu,Vistfræði, Fiskverkun, Sjávarlíffræði og Menningarsaga svo fátt eitt sé nefnt. Setrið styrkir ákveðin verkefni í form ódýrrar gistingar, fæðis og aðstöðu. Vel til fundið að mati slysavarnakvenna og hægt að segja að Skálanes sé einkar fallegur staður sem hægt er að mæla með.
Eftir rigninguna hafði vatn í ám aukist, en bílarnir þurftu yfir þær tvær. Bílstjórarnir fóru varlega enda með dýrmætan farm innanborðs. Þegar heim kom biðu veitingar sem slysavarnakonur höfðu hrist fram úr erminni, dásemdin ein. Ránarkonur er góðar heim að sækja og gáfu okkur undir fótinn um að ekki væri allt búið enn. Nú var komið að því að heimsækja sundlaugina sem staðsett er í gamla fangelsinu. Þegar heiti potturinn vermdi hópnum fékk hann sögu hússins. Gufubaðið er þar sem fangaklefarnir voru. Já óhætt að segja að skemmtileg nýting sé á húsinu. Nú sýndu veðurguðirnir á sér allt aðra hlið en þegar gönguferðin var farin. Sólin skein, jörð þornuð og Seyðisfjörður skartaði sínu fegursta. Fjöllin eru tignarleg og ýmist kalla þau fram innilokunarkennd eða tilfinningu fyrir verndun. Misjöfn upplifun hjá mannfólkinu eins og gengur og gerist. Seyðisfjörður skartar mörgum gömlum húsum enda á staðurinn sér langa sögu um byggð.
Kvöldið lagðist yfir bæinn eins og aðra staði á landinu. Dalvíkskar konur gerðu sig klárar til að hitta Seyðfirðingana í slysavarnahúsinu. Þegar þangað kom stóð vaskur hópur björgunarsveitarmanna fyrir utan ásam grillum, nú skal haldin veisla. Og það er hverju orði sannara, boðið var til veislu með hópnum. Lambakjetið svíkur aldrei og enn síður þarna með svo frábæru meðlæti að við gefum það ekki upp hér. Sósan...við segjum ekki meira. Eftirrétturinn rann ljúflega ofan í alla. Slysavarnadeildin Dalvík þakkaði konunglegar móttökur og afhenti formanni Ránar félagsfána sinn með von um að hann fái að hanga uppi í þeirra fallega húsnæði. Sögur voru sagðar, spilað á gítar og sungið og óhætt að segja að gleðin var við völd, nú sem fyrr. Þegar á nóttina var liðið yfirgáfu gestirnar húsið, þökkuðu fyrir sig og haldið var til hvílu. Hópurinn sammæltist um að hittast á sunnudeginum til að kveðjast. Það var og gert.
Allt var með kyrrum kjörum í Skógum og félagskonur vöknuðu hressar og tilbúnar í ferðalagið heim að morgni 9. október. Leiðin lá í björgunarsveitarhúsið og viti menn, beðið var með nýlagað kaffi og með því. Engum er í kot vísað sem heimsækir þessa frábæru deild á Seyðisfirði. Það er von ferðalanganna að þær þekkist boð félaga sinni á Dalvík. Ferðin gekk vel heim, enda sælar og ánægðar konur á ferð.
Það verður seint ítrekað að svona heimsókn er dýrmæt fyrir félagsmenn slysavarnadeildanna. Þeir læra margt, fá hugmyndir og skiptast á skoðunum um ýmis málefni er varðar slysavarnir, eigin vinnu og regnhlífasamtök þeirra. Skoðanaskipti eru nauðsynleg og því geta félagar Slysavarnadeildarinnar Dalvík ekki annað en mælt með slíkum heimsóknum deilda á milli.
Kærar þakkir fyrir okkur Ránarkonur, þið eruð frábærar.
Myndir eru inni á myndsíðunni okkar
F.h. hópsins,
Helga Dögg Sverrisdóttir, ritari.
07.08.2011 20:26
Fiskidagurinn mikli
Kæru félagskonur til hamingju með frábæra Fiskidaga
Brauðsalan okkar á fimmtudaginn gekk vonum framar og viljum við þakka öllum þeim konum sem lögðu okkur lið við þessa góðu fjáröflun. Eins vorum við með vaktina á bryggjunni og tókst það með miklum ágætum, frekar rólegt var sem er mjög jákvætt. Bestu þakkir fyrir helgina.
Stjórnin
28.07.2011 22:40
Fiskidagurinn
Nú líður að Fiskideginum mikla og þá kemur að okkur að standa okkar vaktir á bryggjunni. Við verðum með vakt í Verðbúðinni ásamt Björgunarsveitinni þar sem við verðum með plástra og tökum á móti litlum börnum sem verða viðskila við foreldra sína. Einnig liggja þar frammi bæklingar og blöð með allskonar fróðleik. Ef að einhverjar konur sjá sér fært að vera á svæðinu í 30 mínútur í senn þá værum við mjög glaðar að heyra í ykkur sem fyrst. Vaktin byrjar kl: 11.00 og henni líkur kl: 17.00. Margar hendur vinna létt verk. Hlökkum til að heyra í ykkur Arna sími 8645977 eða Jóna Gunna sími 8620142
28.07.2011 22:24
Unglingalandsmót
Það fór ekki framhjá nokkurum íbúa Dalvíkurbyggðar þegar að landsmót unglingadeilda Slysavarnarfélagsins Landsbjargar var haldið hér dagana 6-10 júlí síðastliðinn. Mikið líf og fjör var hér á götum og opnum svæðum bæjarinns. Margir gáfu sér tíma til að stoppa og fylgjast með því sem fram fór og má segja að virkilega gaman hafi verið að sjá hversu stór hópurinn var og mikil gleði og samvinna var á meðal krakkanna. Við úr Slysavarnardeildinni fengum að sjálfsögðu að taka þátt, við elduðum og bárum fram dásamlega kjötsúpu sem fékk frábæra dóma og einnig sáum við um framreiðslu á hátíðarkvöldverðinum á mótsslitunum. Það gekk mjög vel að fá konur til starfa og viljum við þakka þeim kærlega fyrir vel unnin störf. Eiga Björgunarsveitin og umsjónarmenn unglingadeildarinnar mikið hrós skilið fyrir skipulagninguna og framkvæmdina á mótinu til hamingju með vel lukkað mót.
27.06.2011 09:52
Save travel.is
Heil og Sæl
Föstudaginn 24. júní var átak hjá Landsbjörg til að kynna síðuna Save travel.is þar sem er að finna allar upplýsingar fyrir ferðamenn hverrar þjóðar sem þeir eru. Þetta er mjög flott síða og gaman að skoða hana og hvetjum við fólk til að kíkja á hana. Björgunarsveitar- og Slysavarnarfólk stóð við Olísstöðvar víðsvegar á landinu og dreifði þar spjöldum í bíla. Við vorum að sjálfsögðu með hérna á Dalvík og mátti sjá fólk frá okkur við Olís á spjalli við ferðamenn. Þetta tókst vel og við mjög ánægð með daginn takk fyrir okkur.
Stjórnin
25.06.2011 09:29
Fermingagjafir
Á fundi hjá okkur í vetur var ákveðið að færa fermingarbörnum ársins reykskynjara að gjöf. Mörg börn eru með sjónvörp, tölvur og önnur rafmagnstæki í herbergjum sínum og fannst okkur nauðsynlegt að þau hefðu reykskynjara sér til forvarnar. Þar sem nokkrir fermingardagar voru nú á vordögum var börnum sem fermdust fyrir Hvítasunnu færð gjöfin föstudaginn 9. júní en hin fengu gjöfina á fermingardaginn. Þetta mældist vel fyrir og voru börnin mjög ánægð með þetta framtak, þetta er vonandi komið til að vera og má segja að allur er varinn góður.
Stjórnin
22.06.2011 18:01
Sjómannadagurinn
Sjómannadagurinn var haldinn 5. júní síðastliðinn og gekk hann með ágætum þó að vindar hafi blásið kalt. Kaffisalan okkar í Safnaðarheimilinu var vel sótt og veitingarnar voru glæsilegar að vanda þökk sé ykkur félagskonum. Vorum við með sölufulltrúa bæði á Akureyri og hérna á Dalvík við að selja sjómannadagsmerkið sem var gefið út líkt og í fyrra, segja má að salan hafi verið frekar dræm en við vorum samt sem áður sáttar við okkar hlut. Takk fyrir daginn !
Stjórnin
- 1
